Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Listamaðurinn Logi Pedro Stefánsson og hans betri helmingur Hallveig Hafstað Haraldsdóttir kíktu til mín í skemmtilegt spjall nú á dögunum.Logi er ekki við eina fjölina felldur en er hann einna þekktastur fyrir músíkina sína en byrjaði hann snemma í mússíksenunni og vakti fyrst athygli fyrir störf sín í hljómsveitinni Retro Stefson sem var geysivinsæl hér um árið en síðan þá hefur hann gert heilan helling af solo efni sem hefur slegið í gegn. Logi er þessa stundina í Listaháskólanum að læra Vöruhönnun og lá því beint við að hann fór af stað með þáttinn Skapalón á rúv sem fjallar um Íslenska hönnun. Þá er hann einn af stofnendum 101 Productons en reka þeir í dag útvarpsstöðina 101.Hallveig er þessa stundina nýbúin í fæðingarorlofi en er hún menntuð í sálfræði og spennt að takast á við ný og spennandi verkefni á komandi tímum.Logi og Hallveig vissu lengi af hvert öðru og tengjast í raun úr allskonar áttum í gegnum sameiginlega vini. Logi man þó vel eftir fyrsta skiptinu sem þau áttu einhver samskipti en það var árið 2014 þar sem Logi var að stríða henni fyrir leik hennar í ansi skrautlegu tónlistarmyndbandi. Þau fóru þó ekki á sitt fyrsta stefnumót fyrr en fjórum árum seinna og smullu algjörlega saman og hafa verið saman síðan og eiga í dag einn strák en átti Logi annan strák úr fyrra sambandi.Í þættinum fórum við um víðann völl en ræddum við meðal annars frumkvöðlamennskuna og tónlistina, sameiningu fjölskyldunar og stjúpmóður hlutverkið, deit-tímabilið og rómantíkina ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Hallveig átti í erfiðleikum með að koma fárveikum Loga uppá spítala.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/isBrynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#68 - Logi Pedro & HallveigHlustað

10. ágú 2022