Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fjölmiðla og dagskrárgerðarkonan Snærós Sindradóttir og hennar betri helmingur blaðamaðurinn Freyr Rögnvaldsson eru gestir þáttarins þessa vikuna.Snærós vaknar með þjóðinni eldsnemma alla virka morgna á Rúv en hefur hún einmitt stjórnað þar morgunþætti rásar tvö undanfarið árið en gegndi hún áður hinum ýmsu störfum innan Rúv, þar á meðal sem verkefnastjýra Ungrúv.Freyr hefur verið í blaðamennskunni síðan 2006 og hefur undanfarin fjögur ár starfað sem blaðamaður hjá fréttamiðlinum Stundinni ásamt því að taka hlutverki sínu á þriðju vaktinni með börnin mjög alvarlega.Freyr sá Snærósu fyrst í gegnum glugga á rútu og hugsaði strax með sér að þarna væri fallegasta kona sem hann hefði á ævi sinni séð, Snærós vippaði sér svo í rútuna og þegar hún kom auga á Frey var hún viss um að þennan mann yrði hún að fá. Það voru þó nokkrar hindranir á leið þeirra og tók þau nokkurn tíma að verða par en var það ekki fyrr en þremur árum síðar að þau byrja opinberlega saman.Í dag eru þau gift og eiga saman tvær stelpur en Freyr átti tvö börn úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífið í fjölmiðlunum og hvernig það er að vinna að erfiðum fréttum, fjölskyldulífið og stjúmóðurhlutverkið, ferðalög, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal ansi skrautlega kvöldstund sem þau deildu með kunningja hjónum á Ítalíu.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#81 - Snærós Sindra & Freyr RögnvaldsHlustað

09. nóv 2022