Síðustu viðmælendur þessa árs eru ekki af verri endanum en það eru þau Ágústa Johnson líkamsræktarfrömuður með meiru og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra.Ágústa og Guðlaugur hafa verið gift í 20 ár, eiga fjögur börn og þrjú barnabörn. Þau höfðu vitað af hvort öðru í nokkur ár áður en þau fóru að stinga saman nefjum en Guðlaugur var að æfa í líkamsræktarstöðinni hjá henni og hafði náð svo góðum árangri að Ágústa náði að plata hann í það verkefni að vera fyrirsæta fyrir karlatíma stöðvarinnar. Það var þó ekki fyrr en nokkrum árum síðar að leiðir þeirra lá aftur saman í prófkjöri fyrir borgarstjórnarkosningar árið 1998 að boltinn fór að rúlla hjá þeim hægt og rólega. Eins og gefur að skilja er nóg að gera hjá þeim báðum; Ágústa er stofnandi og framkvæmdastjóri Hreyfingar og Guðlaugur nýtekinn við nýju ráðuneyti í nóvember á þessu ári komandi úr utanríkisráðuneytinu þar sem hann hefur verið undanfarin fjögur ár. Þeim finnst þó fátt betra en að kúpla sig úr amstri dagins í sveitinni þeirra fyrir austan enda eru þau mikið fyrir útivist og sjá þau fyrir sér að eyða meiri tíma í sveitinni með tíð og tíma til dæmis að rækta grænmeti sem er mikið áhugamál þeirra beggja ásamt til dæmis eldamennsku sem er mikil ástríða á þeirra heimili. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars óplanaða brúðkaupsferð sem endaði á því að verða ógleymanleglegri en þau höfðu nokkurn tíman getað ímyndað sér, ferðalög og húsaskipti á fjölbreyttum stöðum heimsins, ömmu og afa hlutverkið, jólahefðir og lífið í sveitinni og sögðu þau mér kostuglega sögu af metnaðarfullu matarboði sem reyndist vera heljarinnar misskilningur. Njótið vel!Aha.is - https://aha.isBlush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Ajax