Haraldur Þorsteinsson frá Patreksfirði er gestur þáttarins. Hann hóf ungur störf við akstur flutningabíla, bæði fyrir vestan og síðar hjá Viggó hf á Neskaupstað. Hér segir hann sögu sína og um leið sögu allra hinna sem óku og gerðu út flutningabíla í Barðarstrandarsýslu frá upphafi til dagsins í dag.