Pétur B Snæland eða PEBS eins og hann er alltaf kallaður er gestur minn að þessu sinni. Segir hér sögu sína frá unga aldri, allt frá kassabílasmíði, akstur á alvondum steypubílum og ekki síst frá rúmlega 30 ára ferli í akstri hjá Jóa Geira sem gerði út marga bíla í vinnu hjá EIMSKIP. PEBS hefur alla tíð verið afar lífsglaður og finnst ekkert skemmtilegra en að teikna skopmyndir af vinnufélögum.