Ástrós Lind er kvikmyndatökukona og klippari sem er nýbyrjuð að starfa í bransanum. Hún er með borderline disorder, ADHD og kvíða og segir okkur hvernig er að fúnkera í svona bransa með allar þessar raskanir. Ástrós er ótrúlega skemmtilegur karakter, með bráðsmitandi hlátur en hún segir okkur einnig frá því hvernig hefur verið tekið á móti henni í bransanum sem kona.
Við tökum fram að þetta viðtal er einungis byggt á reynslu Ástrósar og á ekki endilega við alla sem eru að kljást við það sama. Hver hefur sína sögu <3
IG/FB: @camerarullar
Email: camerarullar@gmail.com
Heimasíða: camerarullar.wordpress.com
Hlaðvarpið er í boði Podcaststöðvarinnar og Nóa Siríus stúdíó.
P.O.V: Ástrós Lind - ADHD, kvíði og borderline disorder í bransanum