Farðu úr bænum

Farðu úr bænum

Hjalti Rúnar leikari, ljúflingur og stórsnillingur mætti í spjall og fékk vatn að drekka þar sem að ég er ennþá að læra á kaffivélina, fimm þáttum síðar. Hjalti opnaði sig um samband sitt og fjölskyldu sinnar við áfengi, hvernig meðferð hafði áhrif á líf hans og hvernig hann náði stjórn á neyslu sinni. Við tókum einnig hreinskilið spjall um vangaveltur okkar varðandi það að karlar séu almennt ekki jafn virkir í því og konur að berjast gegn kynferðislegri áreitni. Af hverju eru konur mestmegnis að berjast fyrir réttlæti einar og hvað þarf að gera til að fleiri karlmenn láti í sér heyra? p.s af hverju hafa allir sem búa úti á landi æft frjálsar á einum tímapunkti eða öðrum?    IG: @katavignis & @hjalti31 Munið að subscribea og endilega deila þættinum áfram!

#6 Hjalti Rúnar - Eru karlar hræddir?Hlustað

30. mar 2021