Farðu úr bænum

Farðu úr bænum

Ingi Torfi atvinnu peppari og macros kóngur kom í stúdíóið til að leggja okkur hinum línurnar. Nei reyndar ekki en Ingi er hins vegar með fáránlega peppandi og góða nærveru sem að smitar út frá sér. Hann er frumkvöðulinn sem var 16 ár í sömu vinnu eins og hann orðaði svo skemmtilega sjálfur og sagði mér frá því hvernig hann sagði upp vinnunni sinni og stofnaði drauma fyrirtækið í miðjum heimsfaraldri. Við spjölluðum einnig um tímann þegar að hann bjó í Afríku sem unglingur, hvernig macros lífstílinn hefur áhrif á líkamann okkar en ekki síður áhrif á sálina og hvað það er ótrúlega mikilvægt að kunna að meta litlu hlutina í lífinu. Ingi er pepparinn sem að þú vissir ekki að þú þyrftir í líf þitt, njótið vel!   IG: @katavignis & @ingitorfi

#3 Ingi Torfi - Þetta snýst um að bæta sig í litlu hlutunumHlustað

09. mar 2021