Farðu úr bænum

Farðu úr bænum

Berglind Festival alheims drottning kíkti til mín í spjall og mikið var það ógeðslega gaman. Hún sagði mér m.a. frá hinum ýmsu ævintýrum lífs hennar eins og fyrsta viðtalinu hennar með RÚV mækinn, 70 ára manninum í Breiðholti sem sendir henni reglulega hatursskilaboð og því að hún elski að ferðast ein. Við ræddum einnig hvernig líkamsímynd Berglindar hefur breyst í gegnum tíðina og hvort að það hafi verið einhver sérstök pæling á bakvið karakterinn hennar á RÚV. Berglind er náttúrulega one of a kind snillingur sem er einstaklega gaman að hlusta á, vona að þið njótið og gleðileg jól elsku hlustendur!    IG: @berglindfestival & @katavignis  

#29 Berglind Festival - Núna er maður bara æðiHlustað

21. des 2021