Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

Það má sannarlega kalla franska ljósmyndarann og listamanninn Doru Maar drottningu súríalistanna. Ljósmyndir hennar voru eins og úr annarri veröld, hönd skríður úr skel, skrímsli situr á bæn og mannslíkamar taka á sig dýrslega mynd. Þessi dulúðlega kona var ein örfárra kvenna í innsta hring súríalsita í París á millistríðsárunum.  Stjarna hennar skein skært sem listljósmyndari þegar hún tók þá örlagaríka ákvörðun að þræða líf sitt saman við listamanninn Picasso. Verk hennar eru í dag hluti af ljósmyndasögunni.

66) Fljúgum hærra - Dora Maar, drottning súríalistannaHlustað

02. ágú 2023