Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

Þegar við hugsum um soul tónlist dettur eflaust flestum okkar Aretha Franklin í hug enda hafði hún mjög verðskuldað titilinn The Queen of Soul.Hún átti feril sem spannaði næstum 70 ár og gaf út 39 sólóplötur. Hún fékk 18 sinnum Grammy verðlaun og var fyrsta konan til að vera vígð inn í Rock´n´roll hall of fame. Rolling Stone kallaði hana stórkostlegustu söngkonu sinnar kynslóðar og hún fékk sérstök heiðursverðlaun Pulitzer Prize fyrir framlag sitt til tónlistar og menningar í Bandaríkjunum

67) Fljúgum hærra - Aretha FranklinHlustað

09. ágú 2023