Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

Bóndakonur með skóflur og reistan hnefa, byltingakonur með riffla eða keyrandi traktor, reykspúandi verksmiðjur, risastórir akrar, múgurinn og leiðtoginn. Áróðursveggspjöldin sem hin rússneska  Valentina Kulagina skapaði voru fullar af slíkum ljósmyndum. Maðurinn hennar Gustav Klutsis var stjarna í þessu fagi og fyrir þessi kommúnísku hjón átti lífið í Sovétríkjunum, hinu nýja ríki jafnræðis að vera dans á rósum. En í staðin var það stöðug barátta við ritskoðun og tortryggni undir ægivaldi Stalíns.

59) Fljúgum hærra - Valentina Kulagina og sovésk áróðursplakötHlustað

17. maí 2023