Flugvarpið

Flugvarpið

Rætt er við Óskar Pétur Sævarsson forstöðumann Flugakademíu Íslands um stöðu atvinnuflugnáms í dag og horfurnar framundan. Á kóvid tímanum hrundi aðsókn í atvinnuflugnám hérlendis eins og víðar um heim. Nú þegar atvinnugreinin er að taka all hressilega við sér á nýjan leik gæti blasað við skortur á sérhæfðu starfsfólki sem fylgir auknum umsvifum flugfélaganna. Óskar Pétur telur nauðsynlengt að koma flugnáminu inn í menntakerfið hérlendis og kallar eftir því að ríkið komi með meiri og betri hætti að kostnaði íslenskra nemenda við flugnámið, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum.

#60 – Ásókn í flugnám hrundi - 4 byrjuðu í janúar og áhugi að aukast á ný - Óskar Pétur SævarssonHlustað

12. maí 2023