Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Þórir Matthíasson.
Rætt er um dramatíkina í Dublin þar sem Shamrock Rovers vann Víking í forkeppni Meistaradeildarinnar. Frammistaða Víkings í einvíginu voru gríðarleg vonbrigði.
Farið er yfir síðustu leiki Bestu deildarinnar og einnig er rætt um Evrópuleikina framundan og Lengjudeildina.