Hlaðvarp Grindavíkurbæjar, Góðan daginn Grindvíkingur, er ætlað Grindvíkingum og öðrum sem tengja við Grindavík að einhverju leiti. Hlaðvarpið er tekið upp í Studio240 sem er staðsett í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Markmiðið er að deila með ykkur upplýsingum, fréttum, viðtölum, fræðslu og fleiru frá stofnunum Grindavíkurbæjar. Vonandi getum við náð til sem flestra, jafnt ungra sem aldinna.