Grænkerið

Grænkerið

Þessi þáttur átti að fjalla um hrekkjavökuna en hringsnérist í höndunum á tveimur með athyglisbrest og fjallaði nú minnst um það málefni. En hvað með það, gjörið svo vel. Rósa María kíkir í heimsókn eins og svo oft áður og við fórum yfir hvað er á döfinni hjá Grænkerinu. Eva segir frá raunverulegri hryllingssögu sem hún lenti í á dögunum, Við ætlum að elda með ykkur fyrir jólin!Við leitum til hlustenda til að finna nafn á jóla-matreiðslu-gleðina sem er framundanWorld Vegan day er 1. nóvember og við ætlum í vegan pálínuboðÞáttur dagsins er í boði Hérastubbs bakarís.  Við hvetjum fólk til að gera sér ferð til Grindarvíkur og sjá hvernig alvöru vegan úrval í bakaríi lítur út! Meðal annars er hægt að fá ostaslaufur, snúða, kleinuhringi, kanilkleinur og sérbökuð vínarbrauð. Ef þú vilt styðja við rekstur hlaðvarpsins getur þú nú gert það í gegnum www.buymeacoffee.com/graenkerid. Þinn stuðningur skiptir máli. -Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. Intro: Promoe - These walls don’t lie

Hryllingssaga og tilkynningHlustað

31. okt 2023