Grænkerið

Grænkerið

Gestur þáttarins er Valgerður Árnadóttir formaður Samtaka grænkera, varaþingmaður Pírata og dýraverndunar-aktívisti. Vala  hefur lagt áherslu á að tala máli dýranna í pólitísku samhengi og hefur farið fremst í mótmælum og aktívisma í kringum hvalveiðar Íslendinga. Núna nýlega leiddi hún fimm samtök  saman undir átakinu Hvalavinir til að berjast gegn hvalveiðum með því að skipuleggja mótmæli, halda umræðunni lifandi og þrýsta á stjórnmálafólk. Í þessum þætti af Grænkerinu ræða þær Eva um vegan aktívisma og kafa ofan í: Nýlegar fréttir um tímabundna stöðvun á hvalveiðumMismunandi leiðir til að stunda aktívisma Hvernig einstaklingar geta tekið þátt í aktívisma-Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf. Intro: Promoe - These walls don’t lie

Í svona dæmi þá sér maður hver spillingin og frændhyglin er á Íslandi - Vala Árnadóttir um aktívisma á ÍslandiHlustað

30. jún 2023