Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Tuttugasti og annar þáttur af  hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar leit dagsins ljós í dag en þeir Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíoið og létu móðinn mása. Þeir félagar fóru yfir allt það helsta sem gerðist í síðustu umferð í Olísdeild karla ásamt því að spjalla aðeins um hótanir þjálfara Þórs í garð dómara á dögunum.  Þá spjölluðu þeir um komandi verkefni hjá A-landsliði karla en þeir eru að fara á EM í janúar.

12.umferð í Olísdeild karla - Hótanir þjálfara Þórs - Umræða um landslið karlaHlustað

17. des 2021