28.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld þar sem að þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíóið sitt.
Í þættinum að þessu sinni krufðu þeir félagar leik Íslands – Hollendinga þar sem að þeir félagar voru sammála að íslenska liðið mátti prísa sig sæla með sigurinn í leiknum þar sem að þeir gerðu sér lífið erfitt með kaflaskiptum leik.
Þá rýndu þeir í framhaldið hjá strákunum okkar en þeir telja verkefnið gegn Ungverjum gæti orðið strembið sér í lagi þar sem að það verður fullt höll á bandi heimamanna í leiknum.
Að lokum tilkynntu þeir um sigurvegarann í getraunaleik sínum en að þessu sinni voru það tvær sem giskuðu á rétt úrslit og það voru þær Elva Hannesdóttir og Linda Björk Ómarsdóttir og fá þær gjafabréf á BK Kjúkling að launum
Naumur sigur á Hollendingum - Verkefnið við Ungverja verður strembið