Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka studíóinu sínu í kvöld og tóku upp sinn 27.þátt. Stjórnendur þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson. Þeir félagar krufðu leik Íslands og Portúgals til mergjar ásamt því að rýna í framhaldið hjá strákunum okkar í mótinu. Þá tilkynntu þeir hver það var sem vann sér inn gjafabréf hjá BK Kjúkling í getraunaleik en að þessu sinni var það Felix Már Kjartansson sem var næstur því að giska á rétt úrslit og hann fær því gjafabréf að launum.  

Sigur gegn Portúgal í fyrsta leik á EM - Möguleikar gegn Hollendingum ræddirHlustað

14. jan 2022