Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt í kvöld og tóku upp sinn tuttugusta og fimmta þátt vetrarins. Þáttur dagins var í umsjón Jóa Lange, Arnars Gunnarssonar og Gests Guðrúnarsonar
Að þessu sinni var þátturinn tileinkaður EM karla sem fer fram í þessum mánuði í Ungverjalandi og Slóvakíu. Þeir félagar voru sammála því að íslenska liðið væri góðum stað og útlitið sjaldan verið eins gott hjá liðinu. Þá spá þeir því að liðið komist alla leið í 8-liða úrslit og gekk Gestur svo langt að spá liðinu alla leið í undanúrslit.