Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

29.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag þar sem að þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson settust í Klaka stúdíóið sitt. Í þættinum að þessu sinni krufðu þeir félagar leik Íslands – Ungverja þar sem að þeir voru gríðarlega ánægðir með þá ákvörðun Gumma að bakka með vörnina og töldu þeir að það hafi verið lykillinn að sigri íslenska liðsins. Þá rýndu þeir í framhaldið hjá strákunum okkar en þeir telja möguleikanna í milliriðlinum vera ágæta og gengu þeir Jói og Gestur svo langt að spá liðinu alla leið í undanúrslit. Þá tilkynntu þeir um sigurvegarann í getraunaleik sínum en að þessu sinni voru það tvær sem giskuðu á rétt úrslit og það voru þau Veigar Þórður Siguðrsson og Berglind Ýr Gylfadóttir og fá þau gjafabréf á BK Kjúkling að launum. Undir lok þáttarins hrósuðu þeir vefsíðunni handbolti.is fyrir þeirra framlag í handboltaumfjölluninni hér á mótinu og vildu þeir hvetja allt handboltafólk um að vera duglegt við að fara inná síðuna og eins að styðja við bakið á síðunni.

Frábær sigur á Ungverjum -Raunhæfir möguleikar á sæti í undanúrslitum - Handbolti.is að gera frábæra hlutiHlustað

19. jan 2022