Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.

Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.

Viðmælandi þáttarins er Heimir Eyvindarson deildarstjóri og dönskukennari í grunnskólanum í Hveragerði. Heimir hefur komið víða við, að auki við kennaramenntunina er hann einnig garðyrkjufræðingur og tónlistarmaður, hann hefur gert garðinn frægann með hljómsveitinni Á móti sól og verið aðal lagasmiður þeirra hljómsveitar. Í þættinum lýsir Heimir m.a. upplifun sinni á breytingum á skólastarfi grunnskólans sem hann nam við sem barn og starfar nú hjá sem deildarstjóri unglingasviðs og dönskukennari. Einnig ræðum við virka hlustun, jákvætt hugarfar ofl. sem okkur datt í hug.Styrktaraðili þáttarins er gitarskolinn.is.

Skólinn - með einlægni að vopni - Heimir EyvindarsonHlustað

01. nóv 2021