Söngdívurnar og vinkonurnar Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu boðið uppá rjúkandi heitt kaffi og meðí.Þær hafa báðar verið áberandi undanfarin ár í íslensku tónlistarsenunni en má segja að Íslendingar urðu fyrst varir við einstaka sönghæfileika Elísabetar þegar hún keppti hér um árið í Voce Ísland. Stefanía steig ung, eða aðeins sextán ára, sín fyrstu skref í bransanum með Stuðmönnum, hvorki meira né minna en hafði hún þá fyrr um árið unnið söngkeppni Samfés og í kjölfarið boðið að taka að sér að skemmta með þeim sem entist í tvö ár.Þær hafa verið bestu vinkonur síðan þær voru sextán og sautján ára gamlar eða allt frá því Stefanía sá Elísabetu keppa á Samfés ári eftir að hún sjálf sigraði þá sömu keppni.Í dag eru þær svo að fara að halda sérstaka Adele tónleika í Silfurbergi í hörpu og fer hver að verða síðastur að næla sér í miðaÍ þættinum ræddum við meðal annars um músíkina og hvar áhugi þeirra kviknaði á tónlist, bransann, skemmtilega spontant ferðalög sem þær hafa farið saman í, fjölskylduna, vináttuna og margt fleira.Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:Smitten - https://smittendating.com/