Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

Anita Da Silva Bjarnadóttir segir okkur frá reynslu sinni af húsnæðiskerfi borgarinnar þar sem hún beið í næstum tólf ár eftir félagslegri íbúð án þess að biðin skilaði árangri. Hún er nýlega komin aftur á þann biðlista og við ræðum óöryggi á leigumarkaði, hátt leiguverð og ferlið að baki þess að sækja um og viðhalda umsókn um félagslegt leiguhúsnæði. Umsækjendur félagslegs leiguhúsnæðis þurfa að fara í gegnum ákveðið matsferli þar sem fjárhags- og félagslegar aðstæður eru metnar til stiga og þrátt fyrir að þörfin sé mikil, eru margir sem bíða til lengdar eftir húsnæði. Í þættinum förum við yfir þá stöðu sem blasir við fólki sem er fast á milli lágra tekna og okurleigu og ræðum það hvort að uppbygging húsnæðis síðustu ára hafi tekið mið af þörfum öryrkja, láglaunafólks og einstæðra foreldra.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

Löng bið eftir húsnæðiHlustað

21. jan 2022