Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

Við ræðum mikilvægi samstöðu, mótmæli og kraftinn sem á sér stað í því þegar margir einstaklingar koma saman til að senda skýr skilaboð. Karl Héðinn Kristjánsson, Rúnar Freyr Júlíusson og Trausti Breiðfjörð Magnússon ungir sósíalistar koma í Hina Reykjavík til þess að ræða mótmælin gegn ofsóknum á fjölmiðlafólki sem fóru fram síðastliðinn laugardag. Mótmælin voru haldin samtímis á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur og Ráðhústorginu á Akureyri. Við ræðum skipulagsferlið á bak við mótmæli og mikilvægi samstöðunnar.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

Samstaða, mótmæli og kraftur fjöldansHlustað

22. feb 2022