Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

Laufey Ólafsdóttir segir okkur frá starfi EAPN (European Anti Poverty Network) og nýlegum umræðufundi um aðgengi að rafmagnsorku og húshitun. Vegna fátæktar hafa ekki allir það aðgengi. EAPN eru evrópsk samtök sem berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og stóðu ásamt öðrum samtökum fyrir alþjóðlegum fundi um orkumál og aðgengi að þeim.  Í þættinum förum við yfir kröfur sem fram hafa komið varðandi aðgengi fólks að orku og setjum það í samhengi við málin í borginni. Hér má lesa nánar um alþjóðlega fundinn sem er til umræðu í þættinum: Right to energySamstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

Efnahagslegt óréttlæti í orkumálumHlustað

4. feb 2022