Hoobla PodCastið

Hoobla PodCastið

Í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí ræðir Harpa við Ingibjörgu Reynis, sem er ein af reynslumestu sérfræðingum landsins á sviði sölu- og þjónustu. Hún hefur komið inn í fjölmörg fyrirtæki til að þjálfa fólk í að veita góða framlínuþjónustu og góða þjónustusvörun.  Það að búa til jákvæða upplifun viðskiptavina er það sem Ingibjörg brennur fyrir.  Í þættinum ræðir hún og gefur góð ráð um hvernig fyrirtæki geta endurhugsað þjónustu sína og veitt betri þjónustu. Ef skapað er tilgangsríkt starfsumhverfi þar sem horft er til styrkleika fólks og því veitt jákvæð athygli og jákvæður stuðningur í að veita betri þjónustu, þá geta fyrirtæki náð að búa til meira traust og betri ímynd. Góð þjónusta býr til jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini og fyrir starfsmenn og styður við vöxt fyrirtækisins.  Við þökkum Ingibjörgu fyrir gott spjall.  ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic... -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

18# Ingibjörg Reynisdóttir, sölu- og þjónustuþjálfi, markþjálfi og leiðtogi að lániHlustað

20. apr 2022