Hoobla PodCastið

Hoobla PodCastið

Harpa Hermannsdóttir er fjármálastjóri að láni og starfar nú í litlu starfshlutfalli í nokkrum fyrirtækjum, sem getur verið einkar heppilegt fyrir smærri fyrirtæki sem þurfa ekki á fjármálastjóra að halda í 100% starfshlutfalli. Þá geta fyrirtæki fengið fjármálastjóra að láni til að hafa fjármálastjórnunina faglega og til að hafa betri yfirsýn yfir fjármálin.  Harpa hefur mikla reynslu, starfaði hjá Kaupþing banka fyrir hrun og í skilanefnd bankans eftir hrun. Hún starfaði hjá WOW Air og í þrotabúi WOW Air, þannig að það er margt sem Harpa hefur upplifað og reynt í sínum störfum í gegnum tíðina.  Við ræddum þetta allt og hvernig Harpa leiddist út í fjármál. Einnig gaf Harpa okkur góð ráð varðandi fjármálin.  Takk fyrir virkilega skemmtilegt og fróðlegt viðtal Harpa!   ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic... -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

11# - Harpa Hermannsdóttir, fjármálastjóri og áhugakona um fjármálaheilsu og heilsu almennt!Hlustað

12. jan 2022