Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar fyrir ykkur kæru hlustendur. Nú er komið að Rúnari Helga Vignissyni að ljúka þessari yfirferð, en hann valdi að lesa smásögu sem hann þýddi sjálfur, eftir norska rithöfundinn Lailu Stien sem kom út árið 1979 og heitir Ferðin út í eyjuna.

Smásögur heimsins: Ferðin út í eyjunaHlustað

18. nóv 2020