Gestur okkar í þessum þætti er Auður Ösp Ólafsdóttir. Auður miðlar af miklum krafti óteljandi ráðum og reynslusögum til fylgjenda sinna á LinkedIn á sama tíma og hún byggir upp eigið fyrirtæki og stundar MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur áralanga reynslu að vefstjórnun og efnissköpun og byggði m.a. upp ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavik. Hún starfar nú sem ráðgjafi þar sem hún hjálpar fyrirtækjum að fóta sig í stafrænum heimi.
Í þættinum ræða Hildur og Auður meðal annars:
Ævintýralegt ferðalag að stúdentsprófi
Hvernig forvitni hefur leitt hana áfram í gegnum lífið
Hvernig áhugi hennar á leitarvélabestun varð til þess að hún stofnaði ferðaþjónustufyrirtæki út frá bloggi
Hvernig örlögin gripu í taumana og urðu til þess að hún stundar nú MBA nám í HR
Þegar hún áttaði sig á því eftir að hafa dvalist á Spáni að hún vildi stjórna vinnutíma sínum sjálf
Hvað hún tengdi ekki við að vera frumkvöðull (þó að hún sé það!)
Praktísk ráð um hvernig hún notar gervigreind til að vinna mikið magn gagna og spara tíma!
Mennskan vs. gervigreind og hvernig við dílum við meðalmennskumoð
Impostor syndrome og geðheilbrigðismál
Hvað LinkedIn er öflugur miðill til að byggja upp tengslanet
Hvað það að ferðast ein til útlanda gefur henni orku
Í þættinum minnist Auður á bæði gervigreindina Claude ásamt ChatGPT. Hún minnist einnig á Chrome viðbótina Glasp (ChatGPT and YouTube Summary) og Notion
Auður mælir með bókinni Alchemy: The Dark Art and Curious Science of Creating Magic in Brands, Business, and Life eftir Rory Sutherland. Og hlaðvörpin Better Offline og Marketing Against the Grain
-------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
-------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌