Leiðin okkar allra

Leiðin okkar allra

Til hátíðarbrigða fá Ása og Bolli skáldið Soffíu Bjarnadóttur til sín til að grufla í ljósinu, sannleikanum og fegurðinni með henni. Þau ræða skrif og skáldskap, skáldskap sem veruleika og reynslu, uppsprettu innblástursins - aðferð skrifa sem verkfæri heilunnar og lífsins göngu frá ljósi til ljóss, í gegnum skynvillur skóga. Tilefnið er vissulega nýútkomin ljóðabók Soffíu, Verði ljós, elskan - sem bókaforlagið Angústúra gefur út. Soffía er verkefnastjóri bókmennta hjá Bókasöfnum Reykjavíkur, skáld og kennari í ritlist, með meistaragráður í bæði ritlist og bókmenntafræði. Hún á tvö börn, Emil og Líneik Þulu og býr í Reykjavík. Þátturinn kemur út á vetrarsólhvörfum og er jólaþáttur Leiðarinnar okkar allra. Hann er auðvitað tileinkaður öllum þeim sem geta ekki verið með sínum nánustu á jólum vegna faraldursins.Arnaldur, Ása Laufey og Bolli Pétur óska ykkur gleðilegra jóla og friðar í hjarta yfir hátíðarnar.

Verði ljós, elskan: Soffía Bjarnadóttir - jólaþátturHlustað

21. des 2021