Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira.    Efni þáttarins: Saga The Legend of Zelda leikjanna, Majora’s Mask Vs. Ocarina of Time, Tónlist úr Zelda, 2D Zelda Vs. 3D Zelda, Uppáhalds Nintendo leikjatölvan, Framtíð Zelda leikjanna.   Tónlist (intro og outro): Voxel Revolution by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7017-voxel-revolution License: https://filmmusic.io/standard-license

Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 áraHlustað

13. feb 2021