Lestin

Lestin

Í gær voru liðin þrjátíu ár frá andláti einnar skærustu rokkstjörnu síðustu aldar, Kurts Cobain, söngvara, lagahöfundi og forsprakka bandarísku grugg-sveitarinnar Nirvana. Við rýnum í arfleifð þessarar goðsagnakenndu persónu. Af hverju fylgir því svona mikil skömm að fá sekt á bókasafninu? Er það vegna þess að við óttumst dómhörku bókavarðanna? Er það vegna þess að okkur finnst við hafa brugðist? Lóa burðast um með skömm í töskunni, bók sem hún er búin að vera með að láni síðan í nóvember. Lagalisti: Nirvana - Smells Like Teen Spirit Nirvana - Come As You Are Nirvana - Drain You Nirvana - About A Girl Nirvana - Lithium The Magnetic Fields - The Book Of Love

Svipugöngin að bókasafninu, arfleifð andófsmannsins Kurts CobainHlustað

09. apr 2024