Lestin

Lestin

Invisible Landscapes, ósýnilegt landslag, nefnist nýleg heimildamynd eftir tékkneska leikstjórann Ivo Bystřičan. Myndin byggir á vettvangsupptökum og umhverfishljóðum, og varpar fram spurningum um það sem hljóðin í kringum okkur hafa að segja um framtíðina. Um er að íslenskt-tékkneskt samstarfsverkefni, en einn af Íslendingunum sem tóku þátt í gerð myndarinnar er Pan Thorarensen. Hann stendur fyrir sýningu á myndinni í plötubúð Smekkleysu við Hverfisgötu í Reykjavík á fimmtudaginn kemur. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í fjórðu þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective, sem voru að stórum hluta teknir upp hér á landi. Erna Kanema Mashinkila sendir okkur fjórða þátt úr pistlaröð sinni, Sjáumst og heyrumst, og ræðir að þessu sinni við Skúla Isaaq Quase.

Ósýnilegt landslag framtíðar, sjónarhorn Skúla, True DetectiveHlustað

04. mar 2024