Lestin

Lestin

Við höldum áfram að rýna í hugarfarsbreytingar og tískustrauma á samfélagsmiðlum. Við ræðum nú við hlaðvarpsþáttastjórnandann Bergþór Másson, um feminisma, meninisma, andleg málefni og peninga. Allt sem þú snertir - breytirðu; allt sem þú breytir - breytir þér; breytingin er hinn eini varanlegi sannleikur; guð er breytingin sjálf. Nokkurn veginn svona gætum við þýtt eitt fleygasta vers bandaríska rithöfundarins Octaviu E. Butler, sem birtist í bókinni Parable Of The Sower frá 1993. Um er að ræða dystópíska vísindaskáldsögu sem á í óþægilegu samtali við okkar samtíð, og hefst sumarið 2024. Lagalisti: Ike White - Changin’ Times Dorothy Ashby - Come Live With Me Erik Bo Jonsson & The Northern Lights - This Time Around Apples - Time For Me To Go

Lestin vaknar & hugsjónaskáldskapur Octaviu E. ButlerHlustað

27. mar 2024