Lestin

Lestin

Við ræðum við ritstjóra hlaðvarpa hér á Rúv, sem vinnur þessa dagana að nýjum þáttum sem fjalla um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni árið 2019, í samhengi við vinsældir svokallaðra True-crime hlaðvarpa. Hvernig skal gera gott hlaðvarp sem fjallar um mannshvarf? Og hvað ber að varast? Guðrún Úlfarsdóttir býr og starfar í húsi sem er lífsbjörg fólks sem hún mun aldrei hitta; hún er vitavörður. Á dögunum kom út fyrsta sólóplata Ízleifs, en hann hefur verið afkastamikill pródúser í hipphopp senunni um nokkurra ára skeið. Við hringjum til Berlínar og skyggnumst bak við tjöldin hjá Ízleifi. Lagalisti: Mukka - Sunday Solo Volume 3 Elori Saxl - Moss II Uriel Villalobos - Tloque Nahuaque Ízleifur - 10 Djöflar Ízleifur - Og hvað? Ízleifur - Síminn dauður Ízleifur, GDRN - Ekki bíða Ízleifur - Þegar allir eru farnir Ízleifur, Daniil - Bossed Up

Ízleifur, heterótópía vitavarðarins, afþreyingargildi mannshvarfaHlustað

19. feb 2024