Lestin

Lestin

Japanski tónlistarmaðurinn Damo Suzuki féll frá á dögunum, 74 ára að aldri, en hann var líklega þekktastur sem söngvari hinnar áhrifamiklu þýsku súrkálsrokksveitar CAN á fyrri hluta áttunda áratugarins. Magnús Tryggvason Eliassen lék á tónleikum með Suzuki í Reykjavík árið 2012. Á næstunni mun Pálmi Freyr Hauksson fara yfir tilnefnda í helstu verðlaunaflokkum Óskarsverðlaunanna. Í dag skoðar hann flokkinn Besti leikari í aðalhlutverki. Football Manager er afar vinsæll tölvuleikur og ekki alls ólíklegt að fótboltaaðdáandi í lífi þínu spili hann, jafnvel mjög mikið. Orri Fannar Þórisson er ötull spilari leiksins, og komst í fréttir á dögunum eftir að hann var ráðinn sem þjálfari Knattspyrnufélags Vesturbæjar. Lagalisti: CAN - Vitamin C CAN - Father Cannot Yell CAN - Mushroom CAN - Paperhouse CAN - Vitamin C CAN - Peking O CAN - Spoon Damo Suzuki & Black Midi – Live at the Windmill Brixton Sucks to be you, Nigel - Splitta G-inu Spilverk þjóðanna - Orðin tóm

Football Manager, Damo Suzuki og CAN, Besti leikari í aðalhlutverkiHlustað

14. feb 2024