Lestin

Lestin

Við förum í heimsókn í FB og ræðum við sérstakan samfélagsmiðlaráðgjafa Lestarinnar, fatahönnunarnemann Reyni Ólafsson, Við ræðum algórythmann, fyrir-þig síðuna á TikTok, karlmennskuímyndir og hljóð sem borga fyrir mannúðaraðstoð. Við höldum áfram að ræða myndina Anatomy of a Fall eða fallið er hátt. Að þessu sinni er það fræðikonan Berglind Rós Magnússdóttir sem veltir vöngum yfir henni. Elín Halldórsdóttir hefur verið iðin við tónsmíðar og tónlistarútgáfu undanfarin ár, og hafa nokkur laga hennar hlotið mikla hlustun á streymiveitum, þó mest erlendis. Nýjasta plata Elínar nefnist The Multiverse, fjölheimurinn, fyrirbæri sem hún hefur mikinn áhuga á. Lagalisti: Brenda Ray - Sweet Romance Cleo Sol - Don’t Let Me Fall Elín Halldórsdóttir - The Fairy Queen Elín Halldórsdóttir - The Multiverse Jóhanna Björg M. Írisardóttir - Sorgarsöngur Sædísar (úr Ævintýri Sædísar skjaldböku) Elín Halldórsdóttir - Under Your Skin Elín Halldórsdóttir - Stay Healthy Elín Halldórsdóttir - Save The Children Elín Halldórsdóttir - Love Key

Fjölheimar, karlmennska á TikTok, hvenær drepur kona mann?Hlustað

14. mar 2024