Lestin

Lestin

Myndlistakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði. Á jóladag árið 1976 fór hún með fjölskyldunni sinni upp á jökul í skoðunnarferð og féll ásamt móður sinni í sprungu. Hún er ein þeirra listamanna sem sýna verk sín á myndlistasýningunni nr. 5 Umhverfing á suðausturhorni Íslands. Verkin á sýningunni standa frá Lómagnúpi að Eystrahorni. Joe meðlimur í hljómsveitarinnar Cyber er gestaþáttastjórnandi Lestarinnar í dag. Við frumflytjum lag sem er ábreiða af lagi Britney Spears, Overprotected, og heyrum um nýjasta lag sveitarinnar, dEluSioN, sem fjallar um þráhyggju unglinga fyrir rokkstjörnu. Og við heyrum meira af nýrri íslenskri tónlist. Ari Frank Inguson hóf fyrst að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Ari Árelíus árið 2018. Fyrir tveimur árum, sumarið 2022, sendi hann frá sér fyrstu breiðskífu sína, Hiatus Terræ, þar sem þjóðlegum tónum var blandað saman við heimstónlistarstrauma. Nú mun ný plata vera á næsta leiti og fyrsta smáskífan af henni lítur dagsins ljós í næstu viku, samhliða því að Ari leggur upp í svokallaðan sólstöðutúr um landið. Við heyrum hljóðið í Ara, og frumflytjum lagið Look At The Clown.

Trúðurinn Ari Árelíus, ranghugmyndir Cyber, Rúna í jökulsprunguHlustað

18. jún 2024