Lestin

Lestin

Við byrjum Lestina í dag á naflaskoðun. Við veltum fyrir okkur hlutverki Ríkisútvarpsins og Rásar 1 út frá grein sagnfræðingsins Láru Magnúsardóttur, sem birtist í Skírni á dögunum. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu kvikmynd leikstjórans Ira Sachs, Passages, sem hefur verið í sýningu í Bíó Paradís nýverið. Þöglar byltingar nefnist stutt leikverk eftir Magnús Thorlacius. Um er að ræða einþáttung sem var fyrst sýndur á faraldstímanum, en verður nú sýndur aftur á Fringe hátíðinni í Reykjavík um helgina.

Hlutverk Rásar 1, Þöglar byltingar, PassagesHlustað

19. jún 2024