Lestin

Lestin

Það er einhver bölvaður óþverri að ganga, veikindi, flensur, veirur, kvefpestar og sýkingar á hverju horni. Það er vont að vera lasinn, en verst af öllu eru leiðindin, þegar maður situr aðgerðarlaus uppi í rúmi meðan pestin gengur yfir. Við heyrum hljóðið í nokkrum mishressum veikindapésum. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu rapparans GKR, sem kom út á dögunum. Á morgun verður haldin ráðstefna á Sjóminjasafninu sem ber yfirskriftina Horft til framtíðar. Á henni munu meistaranemar í hagnýtri menningarmiðlun fjallaum miðlun á vegum safna og stofnana, sýningar, minjasvæði og þjóðgarða. Hera Guðmundsdóttir segir frá sínu erindi sem fjallar um söfn á Instagram. Lagalisti: Mótettukórinn - Veikur maður, hræðstu eigi, hlýddu (upptaka frá 1986) 10cc - You’ve Got A Cold The Beatles - I’m So Tired Aldous Harding - Fever GKR - Tónlist af GKR 2

Veikindapésarnir, söfn á Instagram, rýnt í GKR 2Hlustað

11. apr 2024