Lestin

Lestin

Nýtt spjallmenni Google, Gemini, varð óvænt að að bitbeini í menningarstríðinu. Ástæðan var sú að spjallmennið virtist varla vera fært um að framleiða myndir af hvítu fólki. Við reynum að skilja af hverju og fáum fleiri fréttir af gervigreind. Tónlistarhátíðin South By Southwest eða SXSW fór fram í borginni Austin í Texas um helgina sem leið, og hefur verið haldin þar árlega síðan 1987. Í ár vakti athygli að fjöldi listafólks ákvað að sniðganga hátíðina vegna tengsla hennar við bandaríska herinn og vopnaframleiðandann RTX (áður Raytheon), sem hefur bein tengsl við Ísraelsher. Helgi Grímur Hermannsson hefur lengi haft þann ósið að kaupa sér alltaf of stóra skó. Hann veltir fyrir sér því sem við lærðum aldrei á barnsaldri, og því sem við lærðum kannski en reyndist svo vera tóm vitleysa.

Bandaríkjaher á tónlistarhátíð, spjallmenni vill ekki hvítt fólk, Helgi lærir að kaupa skóHlustað

20. mar 2024