Lestin

Lestin

Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina. Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja. Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ólína mælti með Passíusálmunum, Katrín Jakobsdóttir með Bréfi til Láru eftir Þórberg. Baldur Þórhallsson valdi hins vegar barnabók eftir Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta. En hvaða merkingu hefur þetta? Hvernig má skilja þetta? Jóhannes Ólafsson, bókmenntafræðingur og þáttastjórnandi bókmenntaþáttar Rásar 1, Bara bækur, gerir tilraun til þess að greina listann.

Menntaskóla-reunion, bækur forsetaframbjóðenda, formaður húsfélagsinsHlustað

28. maí 2024