Lestin

Lestin

Streetdance, sem væri hægt að þýða sem götudans, þó þetta sé í daglegu tali einfaldlega kallað streetdance, er þema Dansdaga, sem eru nú haldnir á annað sinn. Við kíkjum í heimsókn á Dansverkstæðið og spjöllum við Gígju Jónsdóttur og Liinu Magneu um hátíðina í ár, dansböttl og fjölskylduþerapíu. Ásgeir H. Ingólfsson klárar yfirferð sína á Skjaldborgarhátíð þessa árs. Kári Kresfelder er tuttugu og tveggja ára gamall tón- og húsasmiður sem býr og starfar á Neskaupsstað. Hann er í progg-metal hljómsveit sem heitir Chögma, og vakti verðskuldaða athygli á músíktilraunum núna í vor, en gefur líka út tónlist undir eigin nafni og sendi frá sér plötuna Words á síðasta ári.

Dansdagar, áttavilt átta á Skjaldborg, húsa- og lagasmíðarHlustað

27. maí 2024