Lestin

Lestin

Vinsælasta þáttaröðin á íslenska Netflix síðan fyrir páska, er átta þátta sería sem nefnist 3 Body Problem - Þriggja hnatta vandinn. Hér er á ferðinni aðlögun á fyrstu bókinni af þremur úr margrómuðum vísindaskáldsagnaflokki, Remembrance of Earth’s Past eftir hinn kínverska Cixin Liu. Ingi Markússon, rithöfundur og trúarbragðarfræðingur, er mikill aðdáandi þessara bóka. Svo kíkjum við í heimsókn á æfingu í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn er að æfa sýninguna Rómeó hjarta Júlía, eftir þær Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur. Verkið var frumflutt í október 2021 á Stóra sviði leikhússins, nú á að setja það upp á Nýja sviðinu, færa áhorfendur nær, nær vessunum, öskrunum og ástinni.

3 Body Problem og Rómeó hjarta JúlíaHlustað

02. apr 2024