Lestin

Lestin

Við kíkjum á fimmtu hæð Grófarhússins og kynnum okkur Lyktarsafnið sem er hluti af Stofunni, sem er verkefni í Borgarbókasafninu. Þar hittum við þau Juan Camilo Roman Estrada og Dögg Sigmarsdóttur. Listahátíðin LungA var haldin í fyrsta sinn á Seyðisfirði sumarið 2000, og hefur verið stólpi í flóru menningarviðburða á sumrin hér á landi síðan. Í ár verður hátíðin haldin í tuttugasta og fimmta, en jafnframt, síðasta sinn. Við fáum að heyra ástæðurnar fyrir því að skipuleggjendur hafi ákveðið að setja punkt. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fór að sjá Fullt hús í bíó, nýja íslenska kómedíu úr smiðju Sigurjóns Kjartanssonar. Lagalisti: Peter Ivers - Eighteen and Dreaming Teitur Magnússon - Allt líf The Free Design - Love You K.óla - Bless Bless TSS - Þér ég ann

Lyktarsafnið, LungA kveður, Fullt húsHlustað

15. feb 2024