Lestin

Lestin

Vondi hirðirinn eru nýjir þættir úr smiðju Friðgeirs Einarssonar sem frumfluttir verða um Páskana á Rás 1. Við spjöllum við hann um hluti og tiltekt og drasl. Konráð sonur hans er með í för, kominn í páskafrí. Við rifjum líka upp innslag frá árinu 2019, þar sem Eiríkur Guðmundsson veltir fyrir sér vorinu. Var íslenska vorið fundið upp í Kaupmannahöfn? Kemur vor á Íslandi? Eru fjórar árstíðir? Að lokum segir Katrín Helga Ólafsdóttir okkur frá Lucky Lo, tónlistarkonu sem hún heldur mikið upp á.

Vondi hirðirinn, vorið, Lucky LoHlustað

25. mar 2024