Lestin

Lestin

Í gær kynntumst við tveimur önnum köfnum sviðslistakonum sem eru í óða önn að setja á svið þó nokkrar nýjar leiksýningar í lok mánaðar. Það sem við náðum ekki að skoða í gær, hins vegar, er rýmið sem verkin verða flutt í, en það er borgarbúum að góðu kunnugt þó það birtist okkur nú í nýrri mynd. Sviðslistafélagið Afturámóti hefur tekið við lyklum að Háskólabíói og opnar dyr sínar að fjölbreyttri leikhússtarfsemi þar á bæ yfir sumarið. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í tvær nýjar danstónlistarplötur, eina íslenska, og eina erlenda. Sigurður Unnar Birgisson hefur starfað hjá Passamyndum undanfarin 7 ár. Nú hefur hann sagt starfi sínu lausu. Við ræðum við listamanninn Sigurð á þessum tímamótum, en starf hans hjá Passamyndum hefur blætt inn í listsköpun hans, og listin hefur sömuleiðis sett mark á starfsemi Passamynda. Lagalisti: Nobukazu Takemura - mahou no hiroba Stereolab - Diagonals Fievel Is Glauque - Elsewhere Teitur Magnússon - Bara þú Teitur Magnússon - Kamelgult Birnir, Bríet - Juvenile Birnir - Vogur Birnir, Gus Gus - Eða Birnir, Bríet - Fyrsti dagur endans Birnir, Bríet - Lifa af Birnir, Bríet - Andar-drátt Birnir, Bríet - Millikafli 2 Floating Points - Del Toro Floating Points - Vocoder Floating Points - Birth4000

Afturámóti, passamyndir, Birnir & Bríet og Floating PointsHlustað

11. jún 2024