„Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með
blóð í annan handlegginn og næringu í hinn. Og þá bara dett ég út aftur…“
Þetta er ekki venjubundin upplifun sem fólk sem gengst undir efnaskiptaaðgerðir verður fyrir á skurðstofunni en það var nú samt raunin í tilviki Ásgerðar Arnadóttur þegar hún fór á eigin vegum til Póllands í magaermi í febrúar árið 2023. Aðgerðin gekk ekki vel og missti hún t.a.m. miltað í aðgerðinni.
Tveimur vikum eftir heimkomu til Íslands fór Ásgerður að veikjast.
Ásgerður Arnardóttir segir okkur sögu sína í þessum þætti.
#11 Ásgerður Arnardóttir - Magaermi - "Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn."